Þar sýndi
ég fjórtán ný veggverk og tvo skúlptúra.
Verkin eru öll
unnin úr þæfðri ull og textilefnum og myndefnið er mikið sótt þær andstæður
í lífinu sem við mér blöstu í Hírósíma og Nagasaki, annars vegar dauðann
og eyðilegginguna og svo lífskraftinn sjálfan hins vegar.
Ég beiti ýmsum
aðferðum í listsköpun minni, bæði gamalkunnugum og svo nýjum aðferðum
sem ég hef þróað sjálf á grundvelli eldri hefða.
Þetta var 19.
einkasýning mín en í ár er aldarfjórðungur liðinn frá minni fyrstu
einkasýningu í Ásmundarsal. Ég hef líka átt myndverk á 25 samsýningum víða
um heim. Sjá einnig http://www.heidistrand.com
.
Það er líka
gaman að segja frá því að sama dag 9/6 var úrvalssýningin European Art Quilts IV opnuð í textilsafninu í Herning í Danmörku.
Um er að ræða farandsýningu 50 verka eftir evrópska listamenn sem sett
hefur verið upp víða, bæði austan hafs og vestan og eitt þeirra er eftir
mig. Sjá einnig http://www.europeanartquilt.com
.
Þess má geta að ég er með vinnustofu í SÍM-húsinu að Seljavegi 32.